h1

Landið þitt

22 ágúst, 2007

Frá Látrabjargi var ferðinni heitið í náttstað og vorum við búnir að panta gistingu í Hænuvík en hvar er Hænuvík aldrei komið þangað eða heyrt á hana minnst.
Þegar við vorum að leggja af frá Látrabjargi voru tveir Þjóðverjar búnir að ræsa þjófavörnina á bílnum sínum og komust hvorki lönd né strönd en Jón var snöggur að redda þeim.
Við fórum út úr Bílnum og tókum myndir af Breiðuvík hvernig gátu svona hörmulegir atburðir átt sér stað á svona fallegum stað !
Hænuvík er steinsnar frá Látrabjargi samt er það afskekkt að hluta og ekið með hlíðinni að sunnanverðum Patreksfirði og er vegurinn nokkuð góður.
Þarna er falinn paradís, tvö gistihús, við fengum það sem er alveg niður við ströndina, og var ilmurinn og niðurinn frá sjónum þægilegur, Húsið var okkur sagt að væri gamalt vöruhús sem byggt var við útræðið sem stundað var þarna á árum áður, við komum okkur fyrir snæddum og gerðum okkur klára fyri myndatöku á sólarlaginu.

Ég mæli sérstaklega með þessum stað til heimsóknar og er kjörið að staldra við þarna í nokkra daga og njóta all þess sem þessi staður hefur upp á að bjóða

Daginn eftir er ferðinni heitið á Strandirnar

20953.jpg

Hænuvík og Jón Sigurjónsson Ljósmyndari

20972.jpg

Sólarlag í Hænuvík

20971.jpg

Meira sólarlag í Hænuvík

20950.jpg

” Við Breiðuvík “

h1

Landið Okkar

21 ágúst, 2007

Við fylltum díselolíu á tankinn í Borgarfirði þar sem veðrið lék við íslenskum ferðalöngum, bændum og búfénaði

Sunnanverðir Vestfirðir eru sérstaklega áhugaverðir fyrir sögu héraðsins, náttúruperlur og sérstaklega hvernig almættið hefur mótað þessa sveit, er því landslag víða sérkennilegt og sérstaklega áhugaverð til myndatöku fyrir þá sem af því hafa gaman.

Fjölda ummerkja um framkvæmdir á liðnum öldum, allt frá því á landnámsöld. Sumar af þessum minjum eru friðlýstar, og gætu verið elstu minjar um búsetu á Íslandi.

Víða eru verbúðatóftir, minjar frá sjávarútvegi íbúa svæðisins á liðnum öldum og sjálfsbjargarviðleitni sést í hlöðnum görðum sem verja áttu gegn sandfoki, veðrum og vindum. Fjöldi jarða á svæðinu eru komnar í eyði á síðustu áratugum. En nú má sjá að all flestar jarðirnar eru að lifna til lífs með sumar búsetu borgarbúa og oft má sjá merki um hugvit og umhirðu þar sem er verið að reyna að halda við gömlum minjum og er það til fyrirmyndar og mjög þakkarvert.

Borgarland er býsna sérkennilegt og er fallegt. Tjarnir og mýrar, fuglalíf, klettaborgir, sjávarmenjar, gróðurfar og fallegt útsýni.

Borgarlandið sjálft er alsett sérkennilegum klettaborgum, hnjúkum og tindaröðum, sem eru fornar gígrásir eldstöðvarinnar. Samspil fjölmargra afbrigða hefur skapað fjölbreyttar og litskrúðugar bergmyndanir.

Vatnsfjörður er vestasti fjörðurinn á suðurströnd Vestfjarða. Hann var lýstur friðland árið 1975. Alltaf er fallegt í gróðursæld Vatnsfjarðar.

Látrabjarg iðar allt af fugli framan af sumri, þegar við komum að bjarginu var allnokkuð eftir af fugli , þetta er ævintýraheimur sem ekki verður með orðum lýst. Slíkur blettur mun varla finnast annars staðar á jarðríki

Þarna verpa álka, langvía, svartfugl, stuttnefja, rita, lundi og fýll. Stærsta álkubyggð í heimi er í Stórurð. Fuglarnir verpa í nánu sambýli í björgunum, en þó eru ein eða tvær tegundir ríkjandi í hverjum bjarghluta.

Látrabjarg er stærsta sjávarbjarg landsins og eitt þéttsettasta fuglabjarg heims. Það er 14 kílómetrar að lengd og allt að 441 metra hátt. það er betra að vera ekki lofthræddur á þessu stað.

Vestfjarðasléttunnar sem hlóðst upp fyrir um 13-14 milljónum ára eru elstu jarðlög Íslands.

Mörg öfl sameinast um að gera Látrabjarg að paradís fuglanna. Hafið er mikilvægast, það heldur sandberginu við og hrúgar upp urðinni. Í samspili harðra hraunlaga, mýkri millilaga og ágangs vatns og vinda hafa orðið til kjöraðstæður fyrir fuglanna – syllur, stallar og hillur.

Ég held að það sé flottast að leigja flugferð á staðnum og fljúga yfir svæðið og skoða það úr lofti.

Stefnan var tekinn á Hænuvík þegar kvölda tók og mun ég segja frá stórkostlegum stað á morgun.

OG hér eru nokkrar myndir sem teknar voru á leiðinni

b�ll

Gamall hertrukkur Gufufirði

20900.jpg

Auðshaugur ber nafn með rentu.

20922.jpg

Við Látrabjarg

20927.jpg

Lundi ( Puffin )

20947.jpg

Vestfirðir

h1

Landið Mitt

20 ágúst, 2007

Ég hef ekki slegið slöku við í sumar við að ferðast um landið mitt og um helgina var ferðinni heitið Vestfirðina en meiningin var að fara fyrst á Vestur-Strandirnar og gista á Norðurfirði í Skála Ferðafélags Íslands.

Vaknað var fyrir allar aldir á föstudags morguninn og sá ég þá að veðurspáin var ekki eins spennandi á norðurströnd Vestfjarða og var stefnan tekinn á Látrabjarg.
Jón Sigurjónsson er áhuga ljósmyndari eins og ég og kom tímanlega um morguninn og lögðum við í hann strax í skýjuðu veðri, en um leið og við komum út úr Hvalfjarðargöngum byrjaði að létta til og lygna og hellst veðrið þannig alla helgina.

Ferðasagan var nokkuð skrautleg og ætla ég að greina frá henni í nokkrum köflum ásamt birtingu á nokkrum góðum myndum sem ég tók.
Ég ætla að greina fyrst frá því neikvæða í ferðinni :

Rollur voru í miklu magni meðfram þjóðveginum en ég tel það slá öll met um slóðaskap bænda á Vestfjörðum, því viðast hvar annarstaðar er þetta komið í viðunandi horf á þjóðvegum landsins.
Gosflöskur og allskonar drasl var liggjandi á þjóðveginum en það er ekki til nein afsökun fyrir því að kasta út rusli úr bifreiðinni þegar ekið er um þjóðvegi landsins í sumarfríi. þá þarf ekki að minnast á meira neikvætt í þessari ferð.

Firsta myndin er af lunda ( puffin´s ) sem fylgdist með þegar ég var að munda myndavélina :)

20920.jpg

Framhald á morgun :)

h1

Verkfræðingur hengdur fyrir embættismenn

14 ágúst, 2007

Ráðherra samgöngumála hafði uppi stór orð í fréttum í dag.
Þar hafði hann uppi dóma um ráðgjöf verkfræðings sem hafði um skamma hríð
gefið vegagerðinni ráð um margumrædda Grímseyjarferju.
Það er alvarlegt mál þegar handhafar valdsins koma fram með þessum hætti og
það má segja að þarna horfi þessi “aðalsmaður nútímans” ekki til meðalhófs eða sanngirni.
Raunar má segja að nú sé ferjan og allt það sem henni tengist orðin að aukaatriði
en starfsferill verkfræðingsins sem varð að engu í þessari opinberu aftöku, er auðvitað meginatriði málsins.
Mönnum verður hugsað til grandvara þingmanna utan stjórnar og innan sérstaklega
þó þeirra sem vilja halda á lofti réttindum einstaklinga,
að þeir gæti virðingar þess kerfis sem við búum við og leiðrétti þessi
fljótfærnislegu orð ráðherrans.

Bóbo í Heimunum

h1

Veðurdraumar

12 ágúst, 2007

Helgin var frekar róleg hjá mér, aldrei eins og vant heima alla helgina. Öryggisþjónusta kom og setti upp þjófavarnarkerfi hjá mér, ég ætla að vera öruggur um að ekki verði brotist inn hjá mér aftur. og svo er ég nokkur öruggt að ég fæ aðstoð innan 6 mínútna, ef þörf krefur.

Alltaf þegar fer að hausta dreymir mig fyrir veðrinu næstu misseri og oftast er veðurdraumar þessir nokkuð tryggir hjá mér.

Þótt ég komi spá minni á framfæri, þá tek ég fram að ég er ekki í samkeppni við Sigga Storm og þið verði náttúrlega að fylgjast með veðrinu, hjá honum.

Ég ætla ekki að fara yfir drauminn en hinsvegar ætla ég að reyna að túlka hann.

Haustið mun verða rólegt veðurlega séð, þetta haust verður kaldara en síðustu haust, veðrið mun skiptast á nokkra daga fresti í hægum haustlegum áttum og með dásamlegu veðri hér sunnanlands og hægum norðvestlægur áttum með næturfrosti og kólnandi veðri, þessu vestlægum áttum fylgir oft stilla.

Nokkrar haustlægðir munu læðast inn á landið en sjaldnar enn fyrri haust.

Fyrstu snjórinn kemur upp úr 20-25 nóvember og verður viðloðandi fram að jólum, við fáum hvít jól aldrei eins og vant.
Nýja árið færir okkur rysjótta tíð og fremur, mun það haldast fram í miðjan febrúar mánuð, þá kemur frosta kaflinn og ekta vetrar veður, með öllu sem því fylgir og mun það vara fram í mars, vorið kemur ekki jafn snemma og í ár en verður þolanlegt.

Snjóa mun mikið á hálendinu og mun það vera all mikið umfram snjókomu síðari ára.
Ég tek fram þetta er ráðning á veðurdraumi hjá mér, því er þetta byrt án ábyrgðar, en ef ég væri þið og ætlaði í berjamó þá er betra að draga það ekki langt fram eftir hausti, það er styttra í næturfrost en ykkur grunar !

Dreymi mig að ég sé að horfa á veðurspá hjá Sigga Storm, er betra fyrir mig að treysta á guð og lukkuna, heldur en eigin dómgreind næstu daganna, ef ég þarf að taka erfiðar ákvarðanir.

Steini Strútur

h1

Enn ein verðlaunamyndin

11 ágúst, 2007

Bátur

Úrslit voru byrt nú um helgina í ljósmyndakeppni Photopionts.com fyrir júlí sem ég tók þátt í

Þessi keppni fer fram mánaðarlega á Photopionts.com og eru sendar inn tugþúsunda mynda í keppnina í þetta sinn lenti ég í 3 sæti í Sjó og landslags myndum.

Dómendur er 60 atvinnu eða mjög þekktir áhugaljósmyndara og velur hver 60 myndir, þaðan fara myndirnar í undanúrslit þar sem þeir velja úr sigurvegara, þessi mynd var líka valin besta mynd mánaðarins af almenningi,

Alltaf gaman að vera með í keppnum þar sem áhugamálin liggja, með því er bæði mikil æfing og ánægja og svo veit maður betur hvar maður stendur gagnvart öðrum áhugamönnum.

Myndin sem ég byrti er í lit en sú sem ég sendi í keppnina var í svart hvítu og tónaði ég hana líka. En gaman væri að fá álit þerra sem rekast hér inn á bloggið hjá mér hvor er betri að þeirra mati.

Hvar er myndin tekinn ?

h1

Verðlauna Myndir

9 ágúst, 2007

I have decided to introduce to you my best picture and comment I have had on the Internet, all those picture have all had extreme successes as price-winner on Internet and all over the world.
Ég ætla að kynna nokkrar af bestu myndum mínum hér og ummæli sem mér hafa borist um myndinar. Allar þessar myndir eru marg verðlaunaðar, hvort sem er á Netinu eða í öðrum samkeppnum.

aourora-12.jpg

Jökulsárlón

Comments :

Professional Photographer. Gerhardt Thompson, Australia

Absolute magic mate, your title says it all and the viewer has the provelege to enjoy through your talent and camera. A pleasure to share. Cheers my friend, Gerhardt

Professional Photographer
János Gehring, Hungary

Like a tale! :) This one of the most beautiful aurora shots, i’ve ever seen, you know.
I like this city name also. :) )
Cheers, friend.

Amateur Photographer. Ursula L. (CO), Germany

That is an overwhelming marvel…terrific ! Your thoughts are so true… worth heeding and happy those who are able to .
Hugs and thanks for sharing ~Ursula
P.s. My heartiest congratulations on your success !!!! This is inedeed phenomenal!

Amateur Photographer. Maria L Vial, Puerto.

WOW!!! WOW!!! WOW!!! This is awesome… I do not find the words to express how beautiful this is… This is one in a lifetime view!!! and you managed to captured it exquisitely… Great composition, colors, details… all… This is so perfect!!!! that no words can describe it… Your description is also amazing… I love taking pictures because at the time I am with my camera… I live only in the present, looking at the wonderous things that life brings to us… When I am with my camera, there are no problems, no future, no past, only the precious moment I am living… so I think I understand your feelings, and this shot shows them all… Thanks for this precious gift…

Cheers, MaLuisa

Amateur Photographer. Bonnie Steinbach , USA.

I think I love what you wrote almost as much as the incredible image. Philippians 3:13-14 Thats what it reminds me of, the widom of the Apostle Paul. Congradulations dear heart!
Hugs & Kisses
Bonnie

Amateur Photographer. Sharon Bernabeu, USA

Outstanding….Awesome……I can see why you won…congratulations……Sharon

Amateur Photographer, one of the best Ergo T. DeZ , USA

This is beyond amazing and is in a class all by itself. I feel honored just to see it. LIVE IN THE NOW MY FRIEND … WE ONLY HAVE THIS VERY MOMENT! PEACE, Ergo

Amateur Photographer. MANUEL ESTEVES (CO), Portugal

Quase somos levados a dizer que a realidade jamais será assim tão bela! :) É bem verdade que enfrentando a realidade pelo menos temos o frio glacial a perturbar o corpo e o espírito! :) “Selected Photo”.

Amateur Photographer. Marta Boro, Argentina

I dont can belive it…..another planet for me…another world. More much beautiful,different,impressive…Fantastic image and explanation dear Ice.It is a special luck to have you between us and to know this other world.Very thanks of all heart!!!
Super dselected and a Big Hug,Marta:_))

Amateur Photographer. Rod McLeod, United Kingdom

What an amazing image of the Northern Lights,and the quality is outstanding,wonderful exposure control,the stars,textures and tones of the frozen foreground and even the reflections in the immediate foreground,exceptional image my friend, Regards,Rod.

Amateur Photographer. Fabio Ficola, Italy

I think that when you’ve the gift of such a phenomenal view
getting a good picture is a challenge with yourself and the ambition
of the “perfect picture” is your main goal.

This is the best “aurora” picture I’ve ever seen.
My best compliments and may the new year fullfill your dreams

Professional Photographer. Jordi Serra, Spain

Espectacular y de gran belleza !!

saludos mi amigo/jsb

And her are comments from icelanders

Sifin says:

Til hamingju með fyrsta sætið í Ljósmyndakeppni Sigga storms og NFS! Glæsileg mynd hjá þér!

Einar Ragnarsson says:

Friðsæl og falleg :)

gaurinn says:

Glæsileg mynd, fallegur liturinn á norðurljósunum sem æpir á litla ljómann af ísnum sem teiknar sig mjög vel.

asmundur says:

Frábær mynd. Til hamingju með sigurinn í NFS kepninni.

signyjor says:

Hæ Steini – hjartanlega til hamingju með fyrsta sætið :-) og takk fyrir kveðjuna sem ég sá hérna á síðunni.
Bestu kveðjur til þín Signý

kiddi57 says:

Þetta er alveg mögnuð mynd!

h1

Aðalsmaður Nútímans

7 ágúst, 2007

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra er einn áheyrilegasti og skemmtilegasti stjórnmálamaður sem við eigum.

Sá mikli efi er þó vakandi hvar og hver er maðurinn.?

Við höfum heyrt hann tala um ósnortið land svo og að afturkalla eigi virkjanaleyfi, er þá horfin umhyggjan sem sá góði Össur hafði fyrir stjórnarskránni sem hann hafði svo mjög uppi þegar Davíð gekk sem harðast fram gegn Baugsmönnum.
Það er rétt sjónarmið að óskynsamlegt er að nota alla orku okkar til álvera en eiga og mega stjórnvöld ráða atvinnustarfsemi í landinu?
Mætti ekki hugsa sér að ríkisstjórnin tæki sig til og ákvæði hvað við viljum hafa margar lögfræðiskrifstofur í landinu?

Ætlar ráðherrann að ráðast gegn og taka fast á bændum sem eru að reyna að koma upp smávirkjunum sem þú hvattir svo mjög til fyrir kosningar.? ” Vegna smávægilegra frávika frá áætlunum .”
Hvaðan kemur Össur? það er spurningin.
Kemur hann frá þeim væng Alþýðubandalagsins sem ætíð var andsnúið framförum.? Hver veit hann var þó ritstjóri Þjóðviljans.

Á hann uppruna í gamla Alþýðuflokknum sem var misviljugur til að beita atvinnuskapandi
aðgerðum þegar þörf var á.

Hafði hann lært af kvennalistanum sem kom mörgu góðu til leiðar en vildi ekki taka ábyrgð
fyrir hönd kjósenda sinna.? Varla það , en atvinnumálin voru ekki hjartans mál þeirra gáfumanna sem þar voru. Þeir vildu heldur ræða fræðileg málefni á kaffihúsum í hundrað og einum.
Aðeins Össur eða dómgreind okkar óbreyttra borgara getur sagt okkur hvað er rétt.
Segðu okkur elsku Össur hver verður lendingin
hvaðan kemur þú og hvert ertu að fara.

Bóbo í Heimunum

h1

Neyðarlína ?

5 ágúst, 2007

11248.jpg

Ljósmynd : Jón Sigurjónsson

Helgin hefur að mestu leyti verið róleg hjá mér fyrir utan smá uppákomu, þar sem ég vaknaði upp um miðja laugardags nót þar sem maður hafði brotist inn til mín, annars fór þetta allt vel, nema samskipti mín við neyðarlínu þar sem ég komst að því að neyðarlína er ekki neyðarlína, sennilega frekar iðnaðarþjónusta sem velur úr viðskiptavinum og lögreglu sem biður um kennitölu sennilega til að kanna hvort viðkomandi hafi greitt skattana. !

Sigrún elsta stelpan mín skrifaði um þetta á blogsíðunni sinni:  http://www.barbietec.com/

h1

Pósturinn

3 ágúst, 2007

 3200st.jpg

Árið 1776 gaf Kristján konungur Vll. út tilskipun um að komið yrði á póstferðum hér á landi. Tveimur árum seinna hófust reglulegar póstsiglingar milli Íslands og Danmerkur, ein ferð á ári. Fyrstu íslensku frímerkin voru gefin út 1873 en þá var póstmálum á Íslandi komið undir sérstaka stjórn og fyrstu pósthúsin sett á stofn. Árið 1935 var póst- og símarekstur sameinaður undir merki Pósts og síma.

En 200 árum síðar eða árið 1976 var ég staddur undir rótum Esju þar sem þessi póstlest fór framhjá mér og var ferð hennar heitið til Siglufjarðar í tilefni 200 ára afmæli Póstsins.

Ég náði nokkrum myndum af þessu atviki og er sennilega fyrsta þokkalega myndin sem ég náði.