
Sigrún, Erla og Dagrún
2 nóvember, 2007Erla
Þótt ég sjálfur segi frá þá sýnist mér ég hafa verið svakalega heppin varðandi barneignir mínar alla vega sem ég hef verið upplýstur um.
En samkvæmt öruggum heimildum þá á ég tvær stelpur, en í mínum kokkabókum finnst mér ég hafi lagt all mikið meira í málið til að fá fleiri einstaklinga en svona er nú lífið.
Stelpurnar mínar heita Dagrún og Sigrún þær eru svo sætar.
Ástæðan fyrir því að ég þarf að koma þessu á framfæri er að alltaf þegar þær hittast ásamt barnabarninu, elsku Erlu. ,,Þá fer samsæri í gang”. Hringt er í mig og ég sannfærður um að ég sé svo góður Pabbi og Afi, síðan koma sögur um mig og þær og aftur hvað ég er æðislegur, í kjölfarið á þessu ofhóli kemur, Pabbi villtu gefa okkur öllum ís eða við eru á Ask og við erum svo svangar. Það er náttúrlega ekkert hægt að segja nei. Eða er það !
Mér láðist nefnilega að láta plata út úr mér VISA kortið fyrir all mörgum árum og síðan þá keppast þær við að plata svona smá nammi út úr mér.
Þegar þær hringdu í mig í dag þá datt mér í hug hvort ekki sé hægt að kæra þetta til samkeppnisstofnunar því þær sameinast um að plata út úr mér allskonar nammi og nota VISA kortið mitt.

Þú ert besti pabbi í heimi!