h1

Ungur nemur gamall temur.

26 október, 2007

 

Barn Í dag kom ég við í Rúmfatalagernum og datt í hug að athuga hvort þeir ættu ekki til herðatré, það er farið að ganga allverulega á þau hjá mér enda er ég fatasjúkur mjög og kaupi vanalega föt á mig í hverri viku. Ég ráfaði um búðina og fann hvergi herðatré, ég tek fram að ég er ekki sérstaklega fundvís maður. Ég vatt mer að ungum starfsmanni verslunarinnar sem var sennilega um tvítugt, spurði hann skírt og rólega ,,hvar eru herðatrén”.Strákurinn horfði á mig í alllangan tíma eins og ég væri fáviti, svarði mér síðan með gjörsamlega tómum svip, ,,við erum búnir að pakka öllum sumarvörum niður ” Ég fór að skíra út fyrir honum hvernig herðatré væru notuð, en ég sá að hann vorkenndi mér allsvakalega, og sagði heyrðu góði ,, við hofum aldrei verið með svona drasl”Á leiðinni út greip ég lítinn plastkassa undir pakkningar sem ég nota í vinunni og fómpúða undir hnén og kom með þetta að afgreiðsluborðinu og sagði við kassaafgreiðslumanninn sem var um tvítugt, ég ætla að fá þetta hvoru tveggja, strákurinn kallaði á næsta afgreiðslumann og spurði hann hvar hvoru tveggja væri, en strákurinn á næsta kassa svaraði (nota bene líka unglingsstrákur) :”Hey ég LENTI í þessu líka um daginn, þetta þýðir hann ætlar að fá bæði!!” sagði hann brosandi.

3 ummæli

  1. Who is that beautiful baby? Though I can’t read anything that isn’t in English I love the photos that you are always posting.


  2. HAHAHHAHHAAHAHAH, PABBI ÞÚ ERT SVO FYNDIN…HAHAHHA!!!

    Þú ert krútt:) Elska þig


  3. This is the pic you did for the add isn’t it? Did it get published? Beautiful work Steini…Hugs, Bonnie



Rita ummæli