h1

Gellur í dós

24 október, 2007

 bátur

Ég kom við í Nóatúni á leiðinni heim til að kaupa snarl í matinn, afgreiðslustúlkan sem stóð innan við búðarborðið,  spurði! hvað má ég bjóða þér, ég var ekki alveg viss hvað ég vildi en muldraði, eru þið alveg hætt að vera með gellur, ég sá að stelpan roðnaði en sagði ,,nei nei”, ,,nú”! sagði ég það er ekki verra að fá gellur í kvöldmatinn. Stelpan brá sér eldsnöggt frá, ég hugsaði mér gott til glóðarinnar, og taldi að daman væri að ná í gellur bakatil handa mér. En ekki reyndist það svo gott nei hún kom til baka með  ungan yfirmann sem  var um tvítugt. Hann benti mér  á að ungu stúlkurnar hjá honum væru sko ekki kallaðar gellur og ég skyldi ekki vera með neinn dónaskap! Ég  keypti bara fiskibollur í dós í kvöldmatinn.

3 ummæli

  1. Góður :)


  2. Hahahha…pabbi ertu að djóka…hahahahahah. Þú ert fyndin. Þetta er jafn hallærislegt og þegar þú baðst mig að kaupa trippakjöt…mér leið eins og asna!! Ég er búin að þessu sem þú baðst mig að gera


  3. Wow – I came to you thru my friend at Balancing Act here in the United States. I am an amateur nature photographer and I’m fascinated by your perspective. You have an incredible eye for composition and color; even in this black & white photo you give a sense of the cold and loneliness of the shipwreck.



Rita ummæli