
Land Barnanna
26 ágúst, 2007 Það ver rétt komið fram yfir hádegi þegar við yfirgáfum Hólmavík, Við Jón ólum með okkur smá von að þjónustan í Hólmavík yrði betri næst þegar við kæmum í þennan fallega bæ með vinalegri smábátahöfn ( klikk sjá mynd )
Við snigluðust áfram aðallega í norð vestur og stoppuðum víða til að taka myndir enda var nóg að myndaefni og veðrið brosti við okkur og ekki var það verra en samt einkennilegt það ver alltaf fjara, Jón muldraði þegar ég mintist á þetta við hann, að eg væri alltaf að reyna að búa til brandara. ” Og það væru ekki nema örfáir sem heppnuðust “
Þar sem við höfðum nægan tíma ákváðum við að fara út á Drangsnes en þar á leiðinni á Selströnd rákumst við á þenna sérstaka þurrk-kofa ( klik sjá mynd ) og þar var eigandinn stoltur og skrafsamur, Reyndar gafst Jón upp á að hlusta á hann og lagði sig í bílnum meðan ég át í mig sögu staðarins og æfi mannsins.
Næsti markverði staður sem var stoppað til að taka mynd á var Veiðileysufjörður, sérstakur að sjá ef maður er innst í firðinum upp á heiðinni en hann er þröngur og stuttur, En þar bjó kerling með tveimur sonum sínum og hét bærinn Krákutún. En einu sinni þegar strákar urðu beitulausir til fiska fóru þeir í land og skáru stikki úr læri kerlingar til að nota í beitu. og þegar þeir komu úr þeim veiðitúr gerði vitlaust veður og drukknuðu þeir í lendingunni, en Kráka kerling lagði þá á fjörðinn að aldrei skyldi fiskast bein úr firðinum og heldur ekki nokkur maður drukkna þar framar, síða steypt kelling sér í fossinn sem er í botni fjarðarins og drekkti sér. eftir þennan atburð heitir fossinn Krákufoss.
Hver fjörðurinn rekur annan á Vestfjörðum eins og allir vita og næsti fjörður á Ströndunum er Reykjarfjörður allra markverðast þar er Djúpavík og þektust fyri kvikmyndina sem Hrafn Gunnlaugsson tók þar Blóðrautt Sólarlag.
Atvinnustarfsemi hóst þar 1917 og var atvinna stunduð þar með mislöngum hléum en endanlega lagðist atvinnustarfsemi þar alfarið af 1952 og var staðurinn í eyði í all mörg ár en nú er að byggjast upp blómleg ferðaþjónusta á staðnum með Glæsilegu hóteli, sumarbústöðum og minjasafni sem er einnig í uppbyggingu, Þetta er magnaður staður og þess virði að dvelja í nokkra daga og kynna sér sögu og sveit nágrennisins.
í flæðarmáli Djúpuvíkur er hið fornfræga strandferðaskip Suðurland ( klikk sjá mynd ) en skipinu var siglt upp í fjöru og notað sem verbúð í lok síðasta Síldarævintýris Landsins.
Og áfram er haldið vestur og eftir því sem vestar dregur verður byggðin einangraðri og í eiði, ekki verra því meira að skoða og mynda.
Gögur er ekki ekið framhjá án þess að berja augum, mynda og skoða.
Í dag er þar aðeins sumarbústaða byggð, en áður allmikill útgerðarstaður um aldir, hákarlaveiðar stundaðar þar á opnum áraskipum, (klikk klikk kikk sjá myndir )








Flottar myndir pabbi:) Bara 22 dagar í afmælið mitt:)