
Land Ferðamanna
23 ágúst, 2007Eftir að hafa horft á sólina setjast á enda veraldar of sofið svolítið í Hænuvík og fylgjast með sólinni lyftast upp úr fjallgarði Patreksfjarðar var ferðinni haldið áfram enn lék veðrið við okkur.
Í Morgunkyrrðinni stoppuðum við aðeins í botni Patreksfjarðar nánar tiltekið í Skápadal en þar við þjóðveginn er stórt og mikið stálskip ” Garðar ” (klikk sjá mynd ) en það liggur þarna snyrtilegt í fjörukambinum. Í dag þjónar skipið hlutverki sumarbústaðar. Síðan var ekið sem leið lá og komið við í morgun kaffi í Bjarkarlund og voru næturgestir þar að hafa sig til í berjamó, eftir gott kaffi þar lá leiðin upp Þorskafjarðarheiði og inn Á Steingrímsfjarðarheiði en á henni miðri er áhugavert gangnahús hlaðið úr stein með torfþaki en, það er þess virði að stoppa við og skoða þess lysta smíði (klikk sjá mynd )
Við komum Við í Hólmavík um hádegi á Laugardegi og var meiningin að fylla tankinn á bílnum kaupa kaffi og til að geta hellt upp á könuna og kannski smá meðlæti, en viti menn kaupfélagið var lokað, mér er sagt að það sé verið að reyna að byggja Vestfirði upp sem ferðamanna paradís hummmmmm !
Jón var að reyna að koma mér í skilning um að þá yrði að veita lágmarks þjónustu en hann getur ekki verið kaffilaus því hann er ný hættur að reykja, eða svoleiðis.
Og nú var komið að því við vorum farnir að nálgast loka áfanga staðinn sjálfann Strandirnar ég var sko tilbúin í allar myndatökurnar wowwwwww hvað mér hlakkaði til að koma í þetta undra land, sjá áframhald á morgun og magnaðar myndir
Stálskip ” Garðar ” sem sumarbústaður í dag.
Gangnakofi á Steingrímsfjarðarheiði.


Gaman að lesa ferðasöguna svona eftirá. Hún lifir þá lengur í huga manns.