h1

Landið þitt

22 ágúst, 2007

Frá Látrabjargi var ferðinni heitið í náttstað og vorum við búnir að panta gistingu í Hænuvík en hvar er Hænuvík aldrei komið þangað eða heyrt á hana minnst.
Þegar við vorum að leggja af frá Látrabjargi voru tveir Þjóðverjar búnir að ræsa þjófavörnina á bílnum sínum og komust hvorki lönd né strönd en Jón var snöggur að redda þeim.
Við fórum út úr Bílnum og tókum myndir af Breiðuvík hvernig gátu svona hörmulegir atburðir átt sér stað á svona fallegum stað !
Hænuvík er steinsnar frá Látrabjargi samt er það afskekkt að hluta og ekið með hlíðinni að sunnanverðum Patreksfirði og er vegurinn nokkuð góður.
Þarna er falinn paradís, tvö gistihús, við fengum það sem er alveg niður við ströndina, og var ilmurinn og niðurinn frá sjónum þægilegur, Húsið var okkur sagt að væri gamalt vöruhús sem byggt var við útræðið sem stundað var þarna á árum áður, við komum okkur fyrir snæddum og gerðum okkur klára fyri myndatöku á sólarlaginu.

Ég mæli sérstaklega með þessum stað til heimsóknar og er kjörið að staldra við þarna í nokkra daga og njóta all þess sem þessi staður hefur upp á að bjóða

Daginn eftir er ferðinni heitið á Strandirnar

20953.jpg

Hænuvík og Jón Sigurjónsson Ljósmyndari

20972.jpg

Sólarlag í Hænuvík

20971.jpg

Meira sólarlag í Hænuvík

20950.jpg

” Við Breiðuvík “

One comment

  1. I love the charming little village, the detail is remarkable…The building ruins have such an unusual look to the stucco like texture, and a lovely sunset in that one and the silhouette picture. Love the mackerel sky in the first one, and it looks like that little house is still inhabited?
    Beautiful work Steini :)
    Hugs…Bonnie



Rita ummæli