h1

Landið Okkar

21 ágúst, 2007

Við fylltum díselolíu á tankinn í Borgarfirði þar sem veðrið lék við íslenskum ferðalöngum, bændum og búfénaði

Sunnanverðir Vestfirðir eru sérstaklega áhugaverðir fyrir sögu héraðsins, náttúruperlur og sérstaklega hvernig almættið hefur mótað þessa sveit, er því landslag víða sérkennilegt og sérstaklega áhugaverð til myndatöku fyrir þá sem af því hafa gaman.

Fjölda ummerkja um framkvæmdir á liðnum öldum, allt frá því á landnámsöld. Sumar af þessum minjum eru friðlýstar, og gætu verið elstu minjar um búsetu á Íslandi.

Víða eru verbúðatóftir, minjar frá sjávarútvegi íbúa svæðisins á liðnum öldum og sjálfsbjargarviðleitni sést í hlöðnum görðum sem verja áttu gegn sandfoki, veðrum og vindum. Fjöldi jarða á svæðinu eru komnar í eyði á síðustu áratugum. En nú má sjá að all flestar jarðirnar eru að lifna til lífs með sumar búsetu borgarbúa og oft má sjá merki um hugvit og umhirðu þar sem er verið að reyna að halda við gömlum minjum og er það til fyrirmyndar og mjög þakkarvert.

Borgarland er býsna sérkennilegt og er fallegt. Tjarnir og mýrar, fuglalíf, klettaborgir, sjávarmenjar, gróðurfar og fallegt útsýni.

Borgarlandið sjálft er alsett sérkennilegum klettaborgum, hnjúkum og tindaröðum, sem eru fornar gígrásir eldstöðvarinnar. Samspil fjölmargra afbrigða hefur skapað fjölbreyttar og litskrúðugar bergmyndanir.

Vatnsfjörður er vestasti fjörðurinn á suðurströnd Vestfjarða. Hann var lýstur friðland árið 1975. Alltaf er fallegt í gróðursæld Vatnsfjarðar.

Látrabjarg iðar allt af fugli framan af sumri, þegar við komum að bjarginu var allnokkuð eftir af fugli , þetta er ævintýraheimur sem ekki verður með orðum lýst. Slíkur blettur mun varla finnast annars staðar á jarðríki

Þarna verpa álka, langvía, svartfugl, stuttnefja, rita, lundi og fýll. Stærsta álkubyggð í heimi er í Stórurð. Fuglarnir verpa í nánu sambýli í björgunum, en þó eru ein eða tvær tegundir ríkjandi í hverjum bjarghluta.

Látrabjarg er stærsta sjávarbjarg landsins og eitt þéttsettasta fuglabjarg heims. Það er 14 kílómetrar að lengd og allt að 441 metra hátt. það er betra að vera ekki lofthræddur á þessu stað.

Vestfjarðasléttunnar sem hlóðst upp fyrir um 13-14 milljónum ára eru elstu jarðlög Íslands.

Mörg öfl sameinast um að gera Látrabjarg að paradís fuglanna. Hafið er mikilvægast, það heldur sandberginu við og hrúgar upp urðinni. Í samspili harðra hraunlaga, mýkri millilaga og ágangs vatns og vinda hafa orðið til kjöraðstæður fyrir fuglanna – syllur, stallar og hillur.

Ég held að það sé flottast að leigja flugferð á staðnum og fljúga yfir svæðið og skoða það úr lofti.

Stefnan var tekinn á Hænuvík þegar kvölda tók og mun ég segja frá stórkostlegum stað á morgun.

OG hér eru nokkrar myndir sem teknar voru á leiðinni

b�ll

Gamall hertrukkur Gufufirði

20900.jpg

Auðshaugur ber nafn með rentu.

20922.jpg

Við Látrabjarg

20927.jpg

Lundi ( Puffin )

20947.jpg

Vestfirðir

One comment

  1. Flottar myndir pabbi. Ég var þarna líka um daginn, held meiri segja að ég hafi tekið mynd af sama lunda…híhí:)



Rita ummæli